Lýsing
Sett af slípiböndum fyrir Work Sharp Knife & Tool Sharpener MK II brýningarvélina
- 6 banda sett af slípiböndum eins og þeim sem koma með Work Sharp Knife & Tool Sharpener MK II brýningarvélinni
- 12 mm breið
- 3 mismunandi grófleikar – 2 bönd af hverri gerð í settinu:
- P80
- P220
- 6000
Passar fyrir: Work Sharp Knife & Tool Sharpener MK II
Slípiböndin frá Work Sharp eru hönnuð og framleidd í Bandaríkjunum af framleiðandanum Norton sem er leiðandi í framleiðslu á slípivörum fyrir nákvæma skerpingu og slípun á hörðu stáli. Samsetning slípsandsins á böndunum, mynstrið og sveigjanleiki bandana er hannað til að skilja eftir ákjósanlega ávala egg með lágmarks hitamyndun og lágmarks eyðingu efnis. Sumir þekkja hversu hratt og mikið stál hitnar og hversu mikið af stáli hnífblaðsins eyðist ef notað er venjulegt slípiband til að skerpa hnífsblað og notandi gætir ekki að sér. Hönnun slípibanda Work Sharp er lykillinn að góðum árangri í skerpingu með brýnsluvélum frá Work Sharp.
Vörunúmer | Vöruheiti | Strikamerki | Fj. í pk. |
---|---|---|---|
BO-09DX010 | Slípibandasett f. WS MK II P80/P220/6000 | 4045011085253 | 1 |