Lýsing
16 tinda malarhrífa – Solid vörulínan
- Afkastamilkil malarhrífa sem hentar til að losa um jarðveg í beðum eða til að slétta úr jarðvegi, sandi eða grús
- Haus úr stáli – slétt
- Lakkað tréskaft – FSC vottað
Tilheyrir Solid garðverkfæralínu Fiskars, en þar er að finna fjöldann allan af fjölhæfum verkfærum fyrir garðvinnuna. Solid línan er ódýrust af vörulínum Fiskars í garðverkfærum og þessi verkfæri eru frekar miðuð við hefðbundna notkun við heimili, frekar en til atvinnumanna í garðyrkju.
Solid garðverkfærin með löngu skafti eru að ganga í gengum uppfærsluskeið þar sem notuður er ennþá betri efniviður og núna eru trésköft lökkuð til að þau endist betur en áður voru þau ólökkuð til að lækka framleiðslukostnað.
Vörunúmer | Vöruheiti | Strikamerki | Þyngd | Lengd | Breidd | Fj. í pk. |
---|---|---|---|---|---|---|
ZL-1011600 | Malarhrífa Solid 16 tinda | 7317796016201 | 900 g | 164 cm | 41 cm | 6 |