Lýsing
Frábært „jó-jó“ til að passa upp á áhöld og búnað
Hafðu mest nauðsynlega búnaðinn við hendina.Defender L „jó-jó“ eru með fíngerðri karabínu með hring sem að fingur passar auðveldlega í og því auðvelt að handleika ásamt því að koma karabínu í læsta stöðu í „jó-jó-inu“. Einfalt er að festa „jó-jó-ið“ á notanda eða búnað notandans með breiðri klemmu, pinna til að stinga i gegnum efni (s.s. vöðluaxlabönd) eða snúrulykkju.
- Efni húss: rafhúðað ál, „flat sage“ mosagrænn litur (3)
- Efni karbínu: rafhúðað ál, appelsínugulur litur (2)
- Hægt að festa við notanda eða búnað með beltaklemmu (6), snúrulykkju (5) eða pinna með læsingu
- Einföld karabína til að krækja í búnað sem á að halda (2)
- Þrýstilæsing í Defender heldur karabínu
- 91 cm (36″) dyneema þráður, en dyneema er sterkasti þráður sem hægt er að búa til úr trefjum (7)
- Lyklahringur (1)
Veiðimaður sem fer um erfiða slóð, veður þungan straum eða rær um á kajak þarf að gera mikla gæðakröfur til búnaðar síns. Búnaðurinn þarf helst að leysa fleiri en eitt verk og þar að vera þyngdar sinnar virði fyrir notandann. „Jó-jó“ hefur eitt hlutverk en það er að passa upp á áhöld eða búnað notandans. Defender uppfyllir þetta hlutverk en gerir það einnig á svo öruggan hátt að notandinn á ekki að þurfa að hafa frekari áhyggjur og til viðbótar eru hinir ýmsu möguleikar á að festa Defender á notanda eða búnað og hvernig hægt er að festa þráð Defender til að lengd hans henti betur fyrir notkun.
Bæði stærri og minni gerð Defender eru búnar karbínu til að læsa í áhöld og búnað. Karbínan er með hring sem fingur fer auðveldlega inn í til að hafa fullkomna stjórn á karabínunni.
Minni gerð Defender er frábær lausn til að halda veiðigræjum í nálægð við sig. Minni gerðin er með 91 cm (36″) langri Dyneema línu og hentar fyrir minni og léttari búnað. Stærðar sinnar vegna er möguleiki á að hafa prjón með læsingu til að fasta í gegnum efni (s.s. skyrtu, jakka eða vöðluaxlabönd) og að auki er hægt að festa með klemmu og snúrulykkju. Í Defender er læsing fyrir karabínu sem hægt er að þrýsta karabínunni inn í.
Áhöldin frá Gerber eru gerð til að endast alla ævi. Til að viðhalda endingartíma þá skaltu hreinsa Defender með fersku vatni og þurrka með hreinni tusku eða handklæði. Berðu reglulega olíu á liðamót og hreyfanlega hluti.
Vörunúmer | Vöruheiti | Strikamerki | Fj. í pk. |
---|---|---|---|
GE-1056207 | Defender Tether S | 013658153479 | 6 |