Lýsing
Frábært fjölhæft brýnisett
Guided Sharpening System™ (GSS) er frábært brýnisett sem ræður við flest það sem þarf að brýna eða skerpa. GSS var hannað með bæði byrjendur og vana í huga, og hægt er að nota fyrir alla hnífa sem þú átt. Hið bráðsnjalla Pivot-Response™ lausn lætur brýnið velta eftir formi hnífeggjarinnar sem þýðir að hnífseggin rennur rétt eftir brýninu frá skefti og fram á hnífsodd.
Þú getur auðveldlega notað Guided Sharpening System™ brýnisettið til að gera fullkomna egg á vasa-, veiði- og eldhúshnífa ásamt því að brýna tennt hnífsblöð, öngulkróka og handverkfæri. Vanir notendur kunna að meta fjölhæfni GSS sem auðveldar brýningu á margskonar áhöldum og hnífum
Með GSS geturðu valið hvernig þú vilt brýna hníf, eftir kunnáttu þinni og gerð hnífs. Hægt er að læsa Pivot-Response™ veltibúnaðinum ef þú vilt hafa fastann stöðugan brýniflöt fyrir beina egg, eða hafa veltibúnaðinn virkan til að fylgja sveigju hnífsblaðs. Ef þú hefur ekki reynslu af brýningum þá mun Pivot-Response™ veltibúnaðurinn stýra brýningunni fyrir þig og gerir hana einfalda.
Hentar vel til að brýna vasa- og veiðihnífa, axir og handverkfæri, eldhúshnífa og skæri.
Pakkinn inniheldur:
- Guided Sharpening System™ brýnisett með Pivot-Response™
- P320 gróf demantsbrýniplata
- P600 fín demantsbrýniplata
- 17° og 20° gráðustýringar
- Keramík fínslípislá
- Notendaleiðbeningar
Til viðbótar er hægt að kaupa uppfærslu á GSS sem eykur fjölhæfni brýnisins. Í viðbótinni eru tvær demantsplötur með öðrum grófleika en fylgir í upphafspakkanum, annars vegar mjög gróf plata P220 og sérstaklega fín plata með P800 grófleika fyrir enn vandaðari skerpingu. Að auki er plata með leðuryfirborði sem notuð er með 0,5 míkron slípimassa til að fínslípa (hóna) eggina sem lokaumferð skerpingar. Og í viðbótarpakkanum er líka 25°gráðustýring sem hentar vel fyrir veiðihnífa og aðra öflugri hnífa.
Aukahlutir: Viðbót fyrir Guided Sharpening system
Vörunúmer | Vöruheiti | Strikamerki | Fj. í pk. |
---|---|---|---|
BO-09DX150 | Brýnisett Work Guided Sharpening system | 1 |