Lýsing
Öflugt og einfalt brýni. 5 mismunandi brýnigráður og pinni fyrir tennt hnífsblöð
Ken Onion Angle Set Knife Sharpner™ er frábær lausn fyrir þá sem vilja fyrirferðalítið handvirkt brýni sem býður upp á breytilegar brýnigráður og misgrófa brýnifleti.
Tri-Brasive™ stoðirnar eru með þremur flötum með sitthvorum grófleika til að brýna. Auðvelt og fljótlegt að snúa stoðunum til að skipta á milli grófleika.
Með grófu, meðalgrófu demantsyfirborði og fínu keramíkyfirborði brýniflata er auðvelt að breyta lélegu bit hnífsblaðs eða jafnvel skemmdu blaði í hnífblað með góðu biti.
Breytileg brýnigráða frá 15° til 25° í 2,5° þrepum.
Kónískur keramíkpinni sem hægt er að festa á eftir hluta stoðanna og nota til að brýna tenntar eggjar. Líka hægt að nota pinna lausann til að skerpa eggjar sem erfitt er að komast að.
Hentar vel til að brýna hefðbundna vasa- og veiðihnífa, flökunarhnífa, eldhúshnífa, tennt hnífsblöð og aðrar eggjar eins og t.d. skæri og klippur.
Ken Onion er einn af þekkustu hnífahönnuðum Bandaríkjanna, em bæði sérhannar hnífa eftir óskum viðskiptavina og hannar hnífa fyrir betri hnífaframleiðendur. Work Sharp og Ken Onion hafa í sameiningu hannað nokkrar gerðir brýnsluverkfæra.
Vörunúmer | Vöruheiti | Strikamerki | Fj. í pk. |
---|---|---|---|
BO-09DX159 | Brýnisett Angle Set Sharpener | 1 |