Lýsing
Nett en fjölhæft brýni sem fer vel í vasa eða í bakpokanum
Work Sharp hefur hér hannað fjölhæft brýni í fyrirferðalitlu áhaldi. Raufar með karbítblöðum og keramíkpinnum til að brýna og fínslípa hnífsegg á einfaldan máta. Einkaleyfisvarin „Pivot-Response™“ tækni leyfir notendanum að stilla brýningarblöð þannig að þeir fljóti eftir formi hnífseggjarinnar, frekar en að vera fastir.
Hentar vel til að brýna hefðbundna hnífa, flökunarhnífa, axir, handverkfæri og öngulkróka.
Work Sharp® Pivot brýni skilar hraðri, auðveldri og áhrifaríkri leið til að brýna hnífa af flestum gerðum. Convex-Carbide™ brýnipinnar (einkaleyfisvarin lausn) endurvekja bit hnífseggjar og kermíkpinnar fínslípa eggina til að ná hámarksbiti í hnífsblaðið. Að auki er meðalgróft demantsblað utan á brýninu sem nýtist til að laga skemmdir á eggjum hnífa, til að brýna axir eða handverkfæri ásamt því að vera með rauf til að brýna öngulkróka.
Vörunúmer | Vöruheiti | Strikamerki | Fj. í pk. |
---|---|---|---|
BO-09DX155 | Brýni Work Sharp Pivot | 1 |