Lýsing
Brýnisett sem skilar góðum árangri en þarfnast lágmarks kunnáttu
Work Sharp® Benchstone Knife Sharpener™ er frábært áhald með þremur misgrófum brýniflötum og gráðustýringum. Grófasta hliðin er meðalgróf P320 demantsplata og milligrófa hliðin er P600 demantsplata, meðan fínasta hliðin er keramíksteinn sem gefur einstaka lokaslípun á egg. Auðvelt er að skipta um hverja hlið fyrir sig ef þarf að endurnýja. Bráðsniðug Pivot-Response™ lausnin þar sem brýnið veltur til að fylgja lögun hnífsblaðsins, til að gera skerpingu hraðari, auðveldari og nákvæmari. Hægt er að skipa um gráðustýringar á einfaldan hátt eftir því hvaða gerð hnífa er verið að brýna. 20° og 25° stýringar fylgja með í byrjunarpakkanum, en þær hent vel fyrir venjulega eldhúshnífa og vasa- og veiðihnífa. Hægt er að fá aukalega 15° og 17° stýringar sem henta betur fíngerðum gæða eldhúshnífum. Hægt er að læsa Pivot-Response™ veltimöguleika brýnisins ef þarf til að endurforma hnífsblöð eða til brýna t.d. sporjárn eða aðrar beinar eggjar. Gúmmítappar undir Benchstone gera brýnið stöðugt og öruggt á borði. Brýning krefst ekki olíu eða vatns sem gerir brýningu hreinlegri en ella.
Hentar vel til að brýna vasa- og veiðihnífa, flökunarhnífa, eldhúshnífa og skæri.
Vörunúmer | Vöruheiti | Strikamerki | Fj. í pk. |
---|---|---|---|
BO-09DX163 | Brýnisett Work Sharp Benchstone | 1 |