Lýsing
Frábær skæri til slæginga eða hreinsunar á fisk.
Hvort sem verið er að veiða af báti, strönd eða árbakka, þá er gott að hafa við hendina áhald sem hægt er að nota í margt að því sem þarf að gera. Processor slægningaskærin er hægt að nota á margan hátt, hvort sem er samsett eða sundurtekin. Byltingarkennd hönnun splæsir saman margskonar notkunarmöguleika í skærum sem við fyrstu sýn virðast nokkuð hefðbundin.
- Efni handfanga: Trefjastyrkt nælon og TPE plast-/gúmmíblanda fyrir stamara grip.
- Slægningarhnífur (krókur)
- Skafa til hreisturhreinsunar
- Skæri
- Uggaklippir
- Hnífsblað með sléttri egg
- Auðvelt að smella í sundur og þrífa
- Fleiri notkunarmöguleikar með því að taka skæri í sundur
- Notendavænt HydroTread Grip™ handfang
- Auga fyrir snúru eða annað til að festa skæri við eitthvað
- Slíður úr harðplasti sem auðvelt er að hreinsa
Þegar Gerber kannaði hvaða áhald flestir veiðimenn nota til að hreinsa fisk, þá kom í ljós að hefðbundin skæri voru oft nefnd. Hugmyndin þeirra er byggð á hefðbundnum skærum, en þó bætt við ýmisskonar notkunarmöguleikum svo sem til að hreisturhreinsa eða skera niður beitu. Processor slægingaskærin er hönnuð sem fjölnotaverkfæri með marga möguleika, nógu nett til að lauma í veiðitöskuna, frábær að nota og mjög auðvelt að þrífa eftir notkun.
Þetta eru engin venjuleg skæri, þar sem hægt er að taka þau auðveldlega í sundur til að auka notkunarmöguleika þeirra. Slægingarhnífur (krókur) passar auðveldlega í gotrauf og einfalt mál að draga skærahelminginn fram eftir fisknum til að opna fiskinn. Hreinsun innan úr fisknum er gerð auðveld með Processor slægingaskærunum. Hinn skærahelmingurinn er með hnífsblaði sem hentar til margra verka og þar á meðal til að hluta niður beitu. Og auðvitað er hægt að nota Processor slægingarskærin eins og hefðbundin skæri.
Processor slægningaskærin eru með handfangi úr trefjastyrktu nælonefni, með stömum gripflötum úr TPE gúmmí-/plastblöndu. Þegar hendur notanda verða slorugar og sleipar meðan á slægingu stendur þá er nauðsynlegt að áhöldin séu með góðu gripi og stömum flötum. Processor passa vel í lófa (HydroTread Grip™) og með stömu gripi sem gerir það að verkum að auðvelt er fyrir notanda að halda á þeim við þessar aðstæður.
Hvort sem verið er að veiða af bát, kajak, árbakka eða við strönd, þá þarf að hafa réttu áhöldin í vopnabúrinu. Processor slægningaskærin er eitt af þeim áhöldum sem ætti að vera með í öllum veiðiferðum.
Áhöldin frá Gerber eru gerð til að endast alla ævi. Til að viðhalda endingartíma þá skaltu hreinsa Magniplier töngina með fersku vatni og þurrka með hreinni tusku eða handklæði. Berðu reglulega olíu á liðamót og hreyfanlega hluti.
Vörunúmer | Vöruheiti | Strikamerki | Fj. í pk. |
---|---|---|---|
GE-1026555 | Processor – flökunarskæri | 013658153530 | 6 |