Lýsing
X-Series – ný kynslóð af öxum frá Fiskars
- Fiskars X14 exin er alhliða exi til að nota til viðhalds í görðum s.s. til að höggva greinar í sundur eða til smíða t.d. til mótunar eða tálgunar á timbri.
- Ný hönnun á blaði: þunnt blað með hárri egg sem tryggir hreinan og góðan skurð á efni sem verið er að höggva.
- Tvíhert stál í blaði tryggir að blað endist lengur og bit helst lengur
- Húðun blaðs tryggir minna viðnám og blað rennur því betur í gegnum efni og festist síður.
- Mjög örugg tenging milli skafts og blaðs
- Létt en mjög endingargott FiberComp™ plastskaft með trefjastyrkingum er nánast óbrjótanlegt
- Einstaklega gott þyngdarjafnvægi skilar auknum afköstum
- Lögun skafts gerir exina sérlega notandavæna, og minnkar álag á úlnlið
- SoftGrip™ mynstrað stamt grip gefur öruggt grip
- Hulstur fylgir, til að vernd blað þegar exi er ekki í notkun sem og minnkar hættu á slysum
- Hönnuð í Billnös í Finnlandi en þar hafa verið hönnuð og smíðuð stáláhöld í rúmlega þrjár og hálfa öld
- Vann reddot hönnunarverðlaun 2023 – best of the best
- Lengd: 355mm
- Stærð hauss: XS
- 25 ára ábyrgð
Kemur í staðinn fyrir: ZL-1015618 – Exi X7 640 gr.
Vörunúmer | Vöruheiti | Strikamerki | Lengd | Stærð blaðs | Fj. í pk. |
---|---|---|---|---|---|
ZL-1069102 | Exi X-series X14 XS 355mm alhliða | 6411501201614 | 355 mm | XS | 4 |